Pavel ráðinn þjálfari Tindastóls

Pavel Ermolinskij kyssir Íslandsmeistarabikarinn eftir 3:2-sigur Vals á Tindastóli í …
Pavel Ermolinskij kyssir Íslandsmeistarabikarinn eftir 3:2-sigur Vals á Tindastóli í úrslitaeinvíginu síðastliðið vor. mbl.is/Kristinn Magnússon

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur gengið frá samningi við Pavel Ermolinskij um að hann taki við sem þjálfari meistaraflokks karla.

Króatinn Vladimir Anzulovic var látinn taka pokann sinn á dögunum eftir að hafa tekið við sem þjálfari Tindastóls fyrir yfirstandandi tímabil.

Pavel er einn sigursælasti leikmaður sem hefur leikið á Íslandi. Hann lauk leikmannaferlinum með því að vinna Íslandsmeistaratitilinn með Val síðastliðið vor og hafði áður orðið Íslandsmeistari með KR alls sex sinnum.

„Pavel er annálaður körfuboltaheili fyrir utan alla hæfileika hans inni á vellinum. Hann er án efa einn allra sigursælasti körfuknattleiksmaður sem Ísland hefur átt og er að okkar viti mikill happafengur fyrir Tindastól á þessum tímapunkti. Ég er sannfærður um að hann eigi eftir að koma með öfluga nýja og ferska vinda inn í liðið okkar á næstu mánuðum,“ sagði Dagur Þór Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, í tilkynningu frá deildinni.

Pavel kvaðst sjálfur vera spenntur fyrir áskoruninni.

„Ég kynntist íslenska körfuboltanum fyrst í Borgarnesi og hef alla tíð síðan dáðst að þessari stemningu sem sum bæjarfélög úti á landi hafa náð að skapa í kringum körfuna. Tindastóll hefur í gegnum árin alltaf verið einn af stóru andstæðingunum og það hefur alltaf verið gaman að koma hingað á Krókinn og takast ekki bara á við frábæra leikmenn heldur stemninguna í stúkunni á hverjum einasta leik.

Ég hef alltaf dáðst að þessu liði og það verður ótrúlega skemmtilegt að hafa stúkuna hér á Sauðarkróki loksins með sér en ekki á móti. Tindastóll á ennþá eftir að landa „þeim stóra“, sjálfum Íslandsmeistaratitlinum, og það er mikill heiður fyrir mig að fá að blandast núna í þann stóra hóp sem vonandi mun gera þann draum að veruleika sem allra fyrst,“ sagði hann í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert