Tímabilið líklega búið hjá lykilmanni Vals

Téa Adams leikur líklegast ekki meira fyrir Val á leiktíðinni.
Téa Adams leikur líklegast ekki meira fyrir Val á leiktíðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hin bandaríska Téa Adams leikur líklegast ekki meira með Val í úrslitakeppni kvenna í körfubolta vegna meiðsla sem hún varð fyrir í tapi liðsins gegn Njarðvík í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum í kvöld.

Hjalti Vilhjálmsson, þjálfari Vals, sagði við Vísi eftir leik að Adams væri líklegast ristarbrotin og tímabilið væri búið hjá leikmanninum.

Adams meiddist þegar fyrri hálfleikur var tæplega hálfnaður og hrundi leikur Valsliðsins í kjölfarið, en Njarðvík vann stórsigur, 96:58.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert