Nánast allir leikmenn United til sölu

Rær Marcus Rashford á önnur mið í sumar?
Rær Marcus Rashford á önnur mið í sumar? AFP/Glyn Kirk

Enska knattspyrnufélagið Manchester United mun hlusta á tilboð í nánast alla leikmenn karlaliðsins í sumar.

The Telegraph greinir frá því að allir nema ungir og upprennandi leikmenn á við Alejandro Garnacho, Rasmus Höjlund og Kobbie Mainoo séu falir í sumar, þar á meðal Marcus Rashford.

Rashford er ekki á sölulista og verður ekki bolað burt en fari svo að tilboð berist í hann og sóknarmaðurinn vilji breyta til er félagið opið fyrir viðræðum.

Skortur á þátttöku í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili táknar að Man. United verður af töluverðum tekjum sem þátttakan hefði í för með sér.

Það þýðir að selja þarf nokkra leikmenn í því skyni að afla fjármuna ætli félagið sér að styrkja liðið í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert