Valskonur jöfnuðu eftir mikla spennu

Ásta Júlía Grímsdóttir úr Val og Selena Lott hjá Njarðvík …
Ásta Júlía Grímsdóttir úr Val og Selena Lott hjá Njarðvík eigast við í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Valur vann í kvöld 80:77-heimasigur á Njarðvík í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta í kvöld og jafnaði einvígið í 1:1.

Njarðvík vann afar sannfærandi 96:58-heimasigur í fyrsta leiknum en Valskonur náðu að svara í kvöld og jafna einvígið.

Njarðvík var með 27:21-forskot eftir fyrsta leikhluta, en Valur vann annan leikhluta 23:10 og fór með 44:37 stöðu í hálfleikinn.

Njarðvíkingar unnu þriðja leikhlutann 26:16 og komust aftur yfir, en Valskonur reyndust sterkari í fjórða og síðasta leikhlutanum og fögnuðu sigri.

Brooklyn Pannell skoraði 32 stig fyrir Val og Dagbjört Dögg Karlsdóttir gerði 17. Selena Lott skoraði 27 stig fyrir Njarðvík og Lára Ösp Ásgeirsdóttir 14.  

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert