Stjarnan svaraði fyrir sig

Denia Davis-Stewart og Lovísa Björt Henningsdóttir
Denia Davis-Stewart og Lovísa Björt Henningsdóttir Eggert Jóhannesson

Stjörnukonur jöfnuðu metin í 8-liða úrslitum úrvalsdeildar kvenna í körfubolta gegn Haukum í kvöld.

Stjörnukonur mættu ákveðnar til leiks á heimavelli sínum og leiddu með 10 stigum, 21:11 eftir fyrsta leikhluta.

Í hálfleik stóðu leikar 42:23 fyrir Stjörnuna og þrátt fyrir góðan 3. leikhluta hjá Haukum sigldu Garðbæingar sigrinum heim, 79:70.

Denia Davis-Stewart var stigahæst heimaliðsins með 20 stig og 13 fráköst en Keira Robinson skoraði 29 stig fyrir Haukakonur.

Þriðji leikur liðanna fer fram á Ásvöllum á miðvikudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert