Fram kemur inn á vef Landssamband veiðifélaga að Veiðifélag Hítarár á Mýrum hafi ákveðið að auglýsa eftir tilboðum í veiðirétt vatnasvæðinu.
Stangveiðifélag Reykjavíkur hefur verið með ána á leigu um langa hríð. Meðalveiði síðustu ára hefur verið um 690 laxar, en sumarið 2008 var þar metveiði þegar 1298 laxar veiddust þar.
Fram kemur að tilboðið nái til Hítarár, Hítarvatns og hliðaránna Grjótá og Tálma. Útboðsgögn eru hjá umsjónarmanni útboðsins, Ólafi Sigvaldasyni, formanni veiðifélags Hítarár, Brúarhrauni, 311 Borgarnesi. Sími; 661 9860 Tölvupóstur; oli@emax.isog verða þau afhent í tölvupósti gegn skilagjaldi.
Frestur til að skila tilboði rennur út fimmtudaginn 12. apríl 2018, klukkan 12:00. Tilboðin verða opnuð opnuð í hinu fræga veiðihúsi félagsins að Lundi, laugadaginn 14. apríl 2018 klukkan 14:00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Richard Jewell | 9. ágúst 9.8. |