Kosningu til bankaráðs frestað

Landsbankinn
Landsbankinn Kristinn Ingvarsson

Birgir Björn Sigurjónsson dró í dag til baka framboð sitt til bankaráðs Landsbankans hf. og því var kosningu til bankaráðs frestað. Kosið verður í bankaráð á framhaldsaðalfundi bankans sem verður haldinn í Austurstræti 11 í Reykjavík, föstudaginn 22. apríl næstkomandi kl. 13.00.

Aðalfundur Landsbankans vegna rekstrarársins 2015 fór fram í dag. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.

Fundurinn samþykkti tillögu bankaráðs um að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2015 sem nemur 1,2 krónum á hlut eða um 28,5 milljarðar króna. Arðurinn skal greiddur í tveimur jöfnum greiðslum og skal gjalddagi fyrri greiðslu vera 20. apríl 2016 og gjalddagi síðari greiðslu vera 21. september 2016. Arðgreiðslan samsvarar um 80% af hagnaði bankans árið 2015.

Frétt mbl.is: Nöfn tilnefndra bankaráðsmanna

Aðalfundurinn samþykkti heimild þess efnis að Landsbankinn hf. eignist eigin hluti, allt að 10% af nafnverði hlutafjár. Lægsta og hæsta fjárhæð sem bankinn má reiða fram sem endurgjald fyrir hvern hlut skal vera bókfært virði hvers hlutar, þ.e. samsvara hlutfalli á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár, samkvæmt síðasta birta ársuppgjöri eða árshlutauppgjöri áður en kaup á eigin hlutum fara fram.

Ráðstöfun Landsbankans á eigin hlutum sem keyptir verða á grundvelli þessarar heimildar er háð samþykki hluthafafundar. Samsvarandi heimild var samþykkt á aðalfundi 2015.

Starfskjarastefna og þóknun til bankaráðsmanna breytast ekki frá fyrra ári.

Þá fól fundurinn bankaráði að setja í starfsreglur sínar ákvæði um samkeppnislegt sjálfstæði Landsbankans hf. gagnvart öðrum viðskiptabönkum í eigu ríkisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK