Gera sér grein fyrir alvarleika málsins

AFP

Reiknistofa bankanna segir að bilun sem kom upp í kerfum RB í gær hafi verið vegna óvanalegs álags og skýrist af mörgum samverkandi þáttum.

„Að öllu jöfnu ráða kerfi RB við aukið álag í tengslum við mánaðarmót en við það bættist bilun í búnaði  sem takmarkaði afkastagetu og hafði keðjuverkandi áhrif á kerfið. Þetta olli truflunum í heimildargjöf debetkorta, afgreiðslukerfi bankanna og í hraðbönkum,“ segir í tilkynningu frá RB.

Ekki hægt að nota kort í verslunum vegna álags

Fram kemur, að tveir álagstoppar hafi myndast, annars vegar upp úr 13 og hins vegar upp úr 17.

„Á þeim tíma var ekki hægt að nota debetkort í verslunum, hraðbönkum eða afgreiðslukerfum . Þetta varði í rúmar 20 mínútur í fyrra skiptið og rúmar 50 mínútur í seinna skiptið og orsakaði eðlilega mjög mikla röskun hjá verslunar- og þjónustufyrirtækjum.“

Neyðarstjórn RB kölluð út

Þá segir, að neyðarstjórn RB hafi verið kölluð út strax við fyrra atvikið. Stjórnin og stór hópur starfsmanna RB og samstarfsaðila vann að úrlausn fram á kvöld. Klukkan 18 voru kerfi RB komin í eðlilegt ástand og viðgerðum á búnaði var að fullu lokið um kl 21. Ekki er talin hætta á frekari röskun á þjónustu af þessum sökum.

„Færslur sem framkvæmdar voru oftar en einu sinni verða leiðréttar af RB í dag. Viðskiptavinir sem ekki geta beðið geta leitað til síns viðskiptabanka.

RB gerir sér grein fyrir alvarleika málsins og harmar þær erfiðu aðstæður sem sköpuðust. RB mun í samvinnu við sína viðskiptavini greina málið frekar og grípa til ráðstafana sem draga úr möguleikum á sambærilegum bilunum í framtíðinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK