Fasteignamat hækkar um 12,8%

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Heild­armat fast­eigna á Íslandi hækk­ar um 12,8% frá yf­ir­stand­andi ári og verður 8.364 millj­arðar króna. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Þjóðskrá Íslands en fast­eigna­mat henn­ar fyr­ir árið 2019 er birt í dag. Fast­eigna­matið hækk­ar á 99,2% eigna. 

Fast­eigna­mat íbúðar­hús­næðis á land­inu öllu hækk­ar um 12,7% sam­an­lagt en 15% í til­felli at­vinnu­hús­næðis. Hækk­un fast­eigna­mats at­vinnu­hús­næðis á höfuðborg­ar­svæðinu verður 17,2% en 9,9% á lands­byggðinni. Matsverð íbúða í sér­býli á höfuðborg­ar­svæðinu hækk­ar meira en íbúðir í fjöl­býli en á landsbyggðinni er þessu öfugt farið.

Heild­arfa­st­eigna­mat á höfuðborg­ar­svæðinu hækk­ar um 11,6% seg­ir í til­kynn­ing­unni, um 28,3% á Suður­nesj­um, um 14,3% á Vest­ur­landi, 12,1% á Vest­fjörðum, 11% á Norður­landi vestra, 15% á Norður­landi eystra, 9,5% á Aust­ur­landi og um 13,7% á Suður­landi.

Fasteignamat hækkar mest í Reykjanesbæ eða um 34,2%, um 25,5% í Vogum, um 21,1% í Hveragerði og  20,2% á Akranesi.

Nýtt fast­eigna­mat tek­ur gildi 31. des­em­ber á þessu ári og gild­ir fyr­ir árið 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK