Marel kaupir Wenger

Kaupin á Wenger eru mikilvægt skref inn á nýja og …
Kaupin á Wenger eru mikilvægt skref inn á nýja og spennandi vaxtarmarkaði þar sem hátæknilausnir Wenger á sviði þrýstimótunar (e. extrusion) og þurrkunar (e. dryer technology) mynda kjarnann í nýju tekjusviði Marel. Wenger deilir metnaði Marel fyrir nýsköpun og vöruþróun á hátæknilausnum. mbl.is/Hjörtur

Marel hefur gengið frá kaupum á Wenger fyrir 540 milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar 71 milljarði íslenskra króna.

Wenger er fyrirtæki í lausnum og þjónustu fyrir framleiðendur á matvælum fyrir gæludýr, fóðri fyrir fiskeldi og markaðsaðila sem eru að hasla sér völl á ört vaxandi neytendavörumarkaði með afurðir úr plöntupróteinum, að því er segir í tilkynningu frá Marel.

Kaupin voru gerð með hefðbundnum fyrirvörum, þar með talið með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda og hluthafa Wenger. Hafa þeir verið uppfylltir án athugasemda og var því gengið frá kaupunum í dag.

Kaupin á Wenger eru mikilvægt skref inn á nýja og spennandi vaxtarmarkaði þar sem hátæknilausnir Wenger á sviði þrýstimótunar (e. extrusion) og þurrkunar (e. dryer technology) mynda kjarnann í nýju tekjusviði Marel, að því er fram kemur í tilkynningu en auk þess deilir  Wenger metnaði Marel fyrir nýsköpun og vöruþróun á hátæknilausnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK