Sýna Mercedes-Benz í Reykjavík og á Akureyri

Mercedes-Benz GLC.
Mercedes-Benz GLC.

Bílaumboðið Askja mun halda Mercedes-Benz sýningar í Reykjavík og á Akureyri nk. laugardag,  11. nóvember.

Sýningin í Reykjavík verður haldin í höfuðstöðvum Öskju að Krókhálsi 11 klukkan 12-16 og þar verður lögð sérstök áhersla á A-Class, CLA og GLA sem hafa verið mjög vinsælir. Í salnum verða einnig tveir lúxusbílar, S-Class og E-Class, sem vekja ávallt athygli.

Sýningin á Akureyri verður haldin hjá Höldi klukkan 11-16 á laugardag og verða þrír bílar í sýningarsalnum; GLA, CLA og GLC. Þá verður boðið upp á reynsluakstur á sjö bílum; A-Class, B-Class, GLC, GLE, GLA, CLA og GLS.

„Það er ánægjulegt að geta boðið upp á tvær bílasýningar á sama tíma, bæði í höfuðborginni og í höfuðstað Norðurlands,“ segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz fólksbíla í  tilkynningu. „Við munum bjóða upp á veglegan kaupauka fyrir þá sem festa kaup á nýjum Mercedes-Benz, en með öllum bílum sem Askja á til afhendingar strax fylgja sumar- og vetrardekk ásamt alþrifum fyrir bílinn í heilt ár.“

mbl.is