Erlendir starfsmenn BL læra íslensku

Erlendir starfsmenn BL á skólabekk.
Erlendir starfsmenn BL á skólabekk.

Hjá bílaumboðinu BL eru um 10% starfsmanna af erlendum uppruna. Nýverið var þeim öllum boðið að taka stöðupróf í íslensku og hafa fjórtán þeirra nú hafið nám á 1. stigi í íslensku.

Kennt er í tvær klukkustundir í einu í tíu skipti og lýkur námskeiðinu í lok maí. Kennslan er á vegum Retor fræðslu sem býður fyrirtækjum slíka þjónustu.

Að sögn Önnu Láru Guðfinnsdóttur, starfsmannastjóra BL, leggur fyrirtækið áherslu á íslensku sem leiðandi tungumál í starfsemi sinni.

„Í því fjölmenningarsamfélagi sem Ísland er í dag er nauðsynlegt að fyrirtækin aðstoði erlent starfsfólk sitt við að verða sem virkastir þátttakendur í samfélaginu. Í því sambandi er íslenskukunnátta á meðal lykilatriða í aðlögun að samfélaginu og í tengslamyndun við aðra, ekki síst samstarfsfólk og viðskiptavini,“ segir Anna Lára. agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: