Innkalla 27 Mercedes-Benz

Mercedes-Benz GLC.
Mercedes-Benz GLC.

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju hf. að innkalla þurfi 27 Mercedes-Benz GLC allir nýskráðir á þessu ári.

Ástæða innköllunar er að þegar ytri belti fyrir aftursætin eru losuð er möguleiki fyrir því að þau festist. Losa þarf beltin sérstaklega svo þau dragist aftur inn. Viðgerð tekur um klukkustund og felst í lagfæringu á C-pósti.

Bílaumboðið Askja mun senda eigendum viðkomandi bifreiða bréf um innköllunina.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

mbl.is