Volkswagen dagurinn á laugardag

Hekla frumsýnir Volkswagen T-Cross á laugardag.
Hekla frumsýnir Volkswagen T-Cross á laugardag.

Næstkomandi laugardag, 18. maí 2019, verður hinn árlegi Volkswagen dagurinn haldinn hátíðlegur milli klukkan 12 og 16 í Heklu við Laugaveg.

Sara Björk landsliðskona í fótbolta og tvöfaldur Þýskalandsmeistari verður á staðnum milli klukkan 12 og 14. Hún mun árita spjöld, spjallar við krakkana og setur af stað leik þar sem reynir á hittnina.

Veltibíllinn sívinsæli verður á staðnum ásamt því að gestum og gangandi verður boðið upp á ilmandi kaffi frá Kaffitári og vöfflur frá Vöfflubílnum.

Við þetta tilefni frumsýnir Volkswagen T-Cross, nýjasta jepplinginn í jeppafjölskyldunni. T-Cross er örlítið minni en T-Roc sem hefur notið mikillar hylli síðan hann var frumsýndur hér á landi í fyrra.

„T-Cross er eyðslugrannur, afar sprækur og sérstaklega skemmtilegur, framhjóladrifinn jepplingur sem hægt er að fá í þrenns konar útfærslum, bæði beinskiptan og sjálfskiptan. Meðal staðalbúnaðar í T-Cross má nefna sjálfvirka neyðarhemlun, akreinavara, fjarlægðaskynjara, margmiðlunartæki með 6,5“ snertiskjá, aðgerðastýri, LED dagljós og LED afturljós. Í Life-útfærslunni, sem er millitýpan af T-Cross, bætast við alls konar þægindi eins og bakkmyndavél, margmiðlunartæki með 8“ snertiskjá, App Connect snjallsímatenging, þráðlaus farsímahleðsla, regnskynjari, 16“ álfelgur og margt fleira,“ segir í tilkynnngu.

Volkswagen dagurinn hefur verið haldinn árlega nú í nokkur ár og hefur myndast stemning í kringum hann. „Að þessu sinni eru mörg tíðindi og heldur betur ástæða til að fagna frumsýningu þessa skemmtilega jepplings. Í síðustu viku hófum við forsölu á rafmagnsbílnum ID. 3 sem hefur farið fram úr væntingum. Fólk er mjög forvitið um alrafmagnaða bíla og til að mæta kröfum áhugasamra verður tæknimaður á staðnum á Volkswagen deginum til að svara öllum tæknilegum spurningum. Við vonum að sem flestir líti við, þiggi léttar veitingar og njóti dagsins með okkur,“ segir Jóhann Ingi Maganússon vörumerkjastjóri Volkswagen hjá Heklu.

T-Cross er örlítið minni en T-Roc.
T-Cross er örlítið minni en T-Roc.
mbl.is