Kia efst hjá J.D. Power yfir bílsmiði í magnsölu

Kia Sorento
Kia Sorento

Kia er í efsta sætinu í ár­legri áreiðan­leika­könn­un banda­ríska grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins J.D. Power yfir bílaframleiðendur í magnsölu.

Þetta er sjöunda árið í röð sem Kia er í efsta sæt­inu í könn­un J.D. Power. Lúxusmerkin Lexus og Porsche eru í efstu sætunum en Kia er eins og áður segir efst yfir bílaframleiðendur í magnsölu.

Í könnun J.D. Power voru rúmlega 33 þúsund bíleigendur bíla árgerð 2018 spurðir fjölmargra spurninga á mörgum mismunandi svipuð um áreiðanleika bíla þeirra og bilanir síðustu þrjú ár. Könnunin var framkævmd í júlí til nóvember á síðasta ári. Með þessari könnun er J.D Power að fá sem besta mynd af gæðum bíla allra bílaframleiðanda.

„Við erum afar ánægð og stolt með þennan frábæra árangur Kia í áreiðanleikakönnun J.D. Power. Kia hefur lagt mikið upp úr því að framleiða trausta og vel hannaða bíla þar sem nýjasta tækni og öryggi spila stórt hlutverk ásamt mjög góðum aksturseiginleikum. Kia er fyrsti bílaframleiðandinn í heiminum til að bjóða 7 ára ábyrgð á bílum sínum. Það er því stór rós í hnappagat Kia að vera á toppnum sjöunda árið í röð í þessari virtu könnun hjá J.D Power yfir bílaframleiðendur í magnsölu,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Bílaumboðsins Öskju, í tilkynningu.

Jón Trausti bætir við að markaðstaða Kia á Íslandi hafi styrkst jafnt og þétt síðustu árin. „Kia hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár um allan heim og hér á Íslandi er merkið í öðru sæti yfir mest seldu bílanna síðustu ár. Kia er með yfir 10% markaðshlutdeild sem hefur verið hæsta hlutdeild Kia í Evrópu. Við finnum fyrir því að viðskiptavinir okkar hafa verið mjög ánægðir með bílanna og hversu áreiðanlegir þeir. Það er því engin tilviljun að Kia er að ná þessum frábæra árangri.“

Kia Sorento
Kia Sorento
mbl.is