MG kynnir fjölbreyttan rafjeppling

Nýr MG Marvel R Electric.
Nýr MG Marvel R Electric. Ljósmynd/MG

MG Motor hefur kynnt nýtt flaggskip í flota sínum: hinn rúmgóða og framúrstefnulega rafknúna jeppling MG Marvel R Electric, sem frumsýndur verður hjá BL við Sævarhöfða næstkomandi laugardag milli klukkan 12 og 16.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá umboðinu.

Þar segir að MG Marvel R Electric verði, til að byrja með, fáanlegur í tveimur útfærslum; Luxury 2WD sem hefur rúmlega 400 km drægni, og Performance 4WD sem hefur um 370 km drægni. Auk 19“ álfelgna og eftirtektarverðrar útlitshönnunar er MG Marvel R Electric búinn afar fallegri innréttingu og miklum staðalbúnaði fyrir þægindi og öryggi ökumanns og farþega.

Val um 2WD eða 4WD

MG Marvel R Electric 4WD er búinn þremur rafmótorum; einum að framan og tveimur að aftan. Bíllinn er 288 hestöfl, drægni rafhlöðunnar er um 370 km og snerpan úr kyrrstöðu í 100 km/klst. 4,9 sekúndur enda togið um 665 Nm.

MG Marvel R Electric 2WD hefur tvo rafmótora við drifrásina að aftan sem gefa 180 hestöfl og 410 Nm tog. Snerpa úr kyrrstöðu í 100 km/klst. 7,9 sekúndur. Bíllinn hefur um 402 km drægni og hámarkshraði MG Marvel R Electric óháð útfærslum er takmarkaður við 200 km/klst.

Nýr MG Marvel R Electric er framúrstefnulegur.
Nýr MG Marvel R Electric er framúrstefnulegur. Ljósmynd/MG

Sjálfstæður orkumiðlunarbanki

Í MG Marvel R Electric er 70 kWh rafhlaða sem unnt er að hlaða úr 5% í 80% á aðeins 43 mínútum. Þá er bíllinn einnig búinn svokölluðu vehicle-to-load rafkerfi sem leyfir tengingu við annað og ótengt rafkerfi til að hlaða loftdælu, fartölvu eða rafskutlu svo dæmi sé tekið. Raunar er hægt að hlaða annan rafbíl með orku frá MG Marvel R Electric.

MG Marvel R Electric er rúmgóður jepplingur (SUV) sem var sérstaklega hannaður með mikilli áherslu á þægindi, tækni og afköst og er varmadæla t.a.m. staðalbúnaður til að viðhalda drægni rafhlöðunnar í kulda.

Bíllinn er tæplega 4,7 m langur, rúmir 1,9 m á breidd og 1,7 m á hæð. Hjólhafið er um 2,8 m sem veitir gott rými fyrir bæði farþega og farangur. Farangursrými í skotti er 357 lítrar og alls 1.396 lítrar með niðurfelldum sætisbökum. Í Luxury 2WD er að auki 150 lítra farangurspláss undir hlífinni að framan. Með þakbogum er að auki hægt að setja allt að 50 kg af farangri á topp bílsins auk þess sem dráttargetan er allt að 750 kg s.s. fyrir létta kerru eða tjaldvagn.

Glæsilega hannaður.
Glæsilega hannaður. Ljósmynd/MG

Þægindi með miklum staðalbúnaði

Marvel R Electric búinn 19,4 tommu snertiskjá fyrir stjórn afþreyingar og upplýsinga og rúmlega 12 tommu stafrænu mælaborði ásamt fjölbreyttum tengimöguleikum ásamt þráðlausri tengingu við internetið gegnum MG iSMART.

Þá er bíllinn einnig með 360° myndavélakerfi, nákvæmt leiðsögukerfi, snertilausa opnun á rafknúnum afturhlera, tvískipta miðstöð, góð hljómflutningstæki í Luxury og Bose í Performance svo fátt eitt sé nefnt, en ítarlegan lista yfir mikinn staðalbúnað beggja gerða MG Marvel R Electric má kynna sér nánar á mgmotor.is.

MG Marvel R Electric 2WD Luxury kostar frá 6.299 þúsundum króna og Performance 4WD frá 6.999 þúsundum króna.

mbl.is