Þjónustudagur Toyota

Toyota-eigendur eru hvattir til að stilla á K100 þar sem …
Toyota-eigendur eru hvattir til að stilla á K100 þar sem fylgst verður með þjónustudeginum. Ljósmynd/Toyota

Árlegur Þjónustudagur Toyota verður haldinn laugardaginn 13. maí og þá verður tekið á móti Toyota-eigendum sem fá sumarglaðning áður en bíllinn verður þrifinn að utan og þurrkaður. Að því loknu fá allir hressingu áður en haldið er heim.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Toyota. 

Þá segir, að Toyota-eigendur geta tekið þátt í þjónustudeginum hjá Toyota í Kauptúni, í Reykjanesbæ, á Selfossi og á Akureyri og einnig hjá Bifreiðaverkstæði Kópavogs á Smiðjuvegi og Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur á Bæjarflöt. 

Í Kauptúni skemmtir Leikhópurinn Lotta börnum og fullorðnum og DJ Dóra Júlía verður á staðnum ásamt Friðriki Dór og Jóni Jónssyni.

mbl.is