Nýr Toyota C-HR frumsýndur á laugardag

Nýr Toyota C-HR verður frumsýndur hér á landi í Toyota …
Nýr Toyota C-HR verður frumsýndur hér á landi í Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi. Toyota

Söluaðilar Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi bjóða til frumsýningar á nýrri kynslóð Toyota C-HR á morgun, laugardag.

Tækninýjungar í aðalhlutverki

Þetta er önnur kynslóð bílsins sem fyrst var kynntur til sögunnar árið 2016. Nýja kynslóðin er vel búin tækninýjungum frá Toyota meðal annars fimmtu kynslóð Hybrid-kerfisins, nýjustu útgáfu Toyota Safety Sense öryggiskerfinu og vönduðu margmiðlunarkerfi með 12,3” snertiskjá, segir í tilkynningu frá Toyota.

Önnur kynslóð bílsins.
Önnur kynslóð bílsins. Toyota

Á sýningunni á laugardag verður Hybrid-útgafa bílsins sýnd. Hann fæst framhjóladrifinn með 1.8 og 2.0 vél og einnig fjórhjóladrifinn með 2.0 vél.

Í næsta mánuði bætist enn við í C-HR línu Toyota þegar C-HR PHEV, tengiltvinnbíllinn kemur til landsins.

Toyota

Opið er hjá söluaðilum Toyota á laugardag, 17. febrúar frá kl. 12 – 16.

mbl.is