Stórsniðugt fyrir barnaafmælið

Ljósmynd/Thinkstockphotos

Barnaafmæli eru jafn ólík og börnin eru mörg og ekkert eitt rétt þegar kemur að afmælum ungviðisins, nema kannski að það er æskilegt að öllum líði og skemmti sér vel, bæði afmælisbarni og boðsgestum.

Stundum vilja foreldrar gera eitthvað sérstakt og bjóða upp á  leiki. Hér er stórsniðugur leikur sem sagt var frá fyrst á lífstílsvegnum Mömmur.is og mætti einfaldlega kalla Leikstöðvar.

Ljósmynd/Thinkstockphotos

 „Gestirnir mæta spenntir í veisluna og vita stundum ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Til að minnka lætin getur reynst vel að vera búinn að skipuleggja nokkrar leikstöðvar. Leikstöðvar henta yngri afmælisgestum sérstaklega vel en eru þó hugsaðar sem góð afþreying fyrir alla. Betra er að skipuleggja færri en fleiri  stöðvar í einu. Þrjár til fjórar mismunandi stöðvar ættu að duga. Leikstöðvarnar auðvelda afmælishaldaranum verkið því þarna hafa gestirnir nóg að gera áður en veitingarnar eru bornar fram. Afmælishaldarinn getur þannig einbeitt sér af veitingunum."

Ljósmynd/Thinkstockphotos

"Leikstöðvarnar þurfa helst að vera á sitt hvorum staðnum. Hægt er að hafa tvær stöðvar í herbergi. Börnin eiga að geta farið á milli og dundað sér. Ekki á að takmarka fjölda heldur eiga stöðvarnar að vera þannig hugsaðar að margir geti gert það sama í einu. Hafið stöðvarnar einfaldar þannig að gestirnir þurfi sem minnsta aðstoð."

Það sem sennilega er best við þennan leik, er hversu einfaldur hann og krefst ekki stöðugrar stjórnunar foreldris sem getur einbeitt sér að veitingunum eða bara notið þess að fylgjast með. 

Ljósmynd/Thinkstockphotos

Nokkrar hugmyndir af leikstöðvum:

- Dótakassi.

- Litir og litabækur eða útprentuð blöð af netinu.

- Furðuföt.

- Skæri og lím. Hægt að nýta gömul tímarit sem hægt er að klippa niður.

- Málningarstöð. Yfir sumartímann er hægt að strengja pappírsrúllu á grindverk eða húsvegg og hafa liti og málningu hjá.

- Púsluspil.

- Bækur til að skoða eða lesa.

- Borðspil.

Færslan á mömmur.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert