Smávegis stærðfræði fyrir svefninn

Rannsóknir gefa til kynna að við getum notað nákvæmlega sömu …
Rannsóknir gefa til kynna að við getum notað nákvæmlega sömu aðferð við að þjálfa stærðfræði eins og við þjálfum lestur. Ljósmynd/Thinkstockphotos

Mikilvægur hluti daglegs uppeldis ungra barna er að foreldrar lesi fyrir börnin sín á meðan þau eru ung og að lestur sé hluti af daglegu lífi. Á heilsuvefnum Heilsan okkar  er grein eftir Emmu Swift sem segir að það sé mikilvægt fyrir börn að heyra sögur á hverjum degi því þannig auki þau orðaforða sinn og lesskilning.

„Við vitum að með þessum hætti getum við undirbúið börnin okkar sem best áður en þau læra svo sjálf að lesa. En það vefst oft fyrir foreldrum hvernig best sé að undirbúa börn sín fyrir nám í stærðfræði. Rannsóknir gefa þó til kynna að við getum notað nákvæmlega sömu aðferð við að þjálfa stærðfræði eins og við þjálfum lestur,“ skrifar Emma í greininni.

„Með því að lesa fyrir börnin stærðfræðisögur getum við kynnt þau fyrir einföldum hugtökum í stærðfræði frá unga aldri og þannig byggt upp færni og sjálfsöryggi á nákvæmlega sama hátt og við gerum með lestri annarra bóka. Slíkar stærðfræðisögur hafa líka verið settar á tölvutækt form, t.d. sem snjallsímaforrit (app) eða tölvuleikur.“ 

Ljósmynd/Thinkstockphotos

Heppilegt smáforrit fyrir foreldra sem eru ekki góðir í stærðfræði

„Eitt slíkt snjallsímaforrit var prófað á 587 börnum í fyrsta bekk í Bandaríkjunum. Börnin sem notuðu forritið með foreldrum sínum juku færni sína í stærðfræði mun meira en börnin sem ekki notuðu það.“

Emma segir að þau börn sem lærðu mest á því að nýta forritið voru börn sem áttu foreldra sem töldu sig ekki með góða færni í stærðfræði sjálf. Stærðfræði-appið byggir á bókum sem kallast Bedtime Math og hefur það að markmiði að hvetja foreldra og börn til að verja tíma saman við að lesa stærðfræðisögur og leysa einföld dæmi tengd sögunum.“

Hún segir að engin tímapressa eða stig séu gefin, heldur er markmiðið að foreldri og barn geti átt notalega stund við að lesa söguna og leysa saman stærðfræðidæmið sem fylgir. Sögurnar og dæmin verða svo flóknari með tímanum. Velja má um þrjú erfiðleikastig og henta auðveldustu dæmin börnum frá fjögurra ára aldri.

„Til eru mörg stærðfræðiforrit sem hafa það að markmiði að kenna börnum stærðfræði en þetta app varð fyrir valinu við rannsóknina í Bandaríkjunum því það krefst samvinnu foreldris og barns, án þess að foreldrið þurfi að hafa mikinn bakgrunn í stærðfræði. Vitað er að samræður og samvera með foreldrum hefur mikil áhrif á hversu mikið krakkar læra og því vildu rannsakendurnir frekar nýta app sem yki samveru frekar en ýta krökkum í að vera einum í tölvunni. Þar að auki er forritið frekar einfalt í útliti sem rannsakendur töldu mikinn kost því forrit með mikilli tónlist og hröðum myndum dregur athygli barnanna frá því sem þau eru að lesa og gera. Sögurnar fjalla um allt milli himins og jarðar og sýna krökkunum glögglega að stærðfræði er alls staðar í kringum okkur og hluti af öllu sem við gerum.“

Greinin á Heilsan okkar vefnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert