Pippa og James Matthews eignuðust sitt fyrsta barn um miðjan mánuðinn. Hjónin fóru út að ganga með erfingjann um helgina. Fór vel um soninn í vagni af gerðinni Bugaboo en merkið er vinsælt meðal stjörnuforeldra.
Er Bugaboo-vagninn af tegundinni Fox Classic samkvæmt Daily Mail og kostar 1.119 pund eða 174 þúsund krónur. Gwyneth Paltrow, Victoria Beckham og Elton John eru meðal stjörnuforeldra sem eru aðdáendur Bugaboo.
View this post on InstagramA post shared by Philippa Charlotte Middleton (@pippamidletons) on Oct 21, 2018 at 5:57am PDT