Skrítnir hlutir sem konur gera á meðgöngu

Óléttar konur hafa gert ótrúlegustu hluti eins og að svara …
Óléttar konur hafa gert ótrúlegustu hluti eins og að svara í símann með banana. mbl.is/Thinkstockphotos

Meðgöngur hafa ótrúlegustu áhrif á konur en margar þeirra hafa upplifað sig í mun undarlegri aðstæðum en alla jafna. Nokkrar konur deildu nokkrum skrítnum uppákomum frá óléttunni á vefnum Mammamia

Ein kona segist hafa grátið ofan í vöfflurnar á disknum sínum einn morguninn þar sem vöfflurnar vöru ekki jafn góðar og hún hafði ímyndað sér. Hún var svo vonsvikin að hún fór að gráta. Hún grét líka af því að andlitmálning eignmanns hennar á hrekkjavökunni varð ekki jafn flott og á myndinni sem hún var að reyna að líkja eftir. 

Eitt af fyrstu einkennunum hjá einni konu var að hún upplifði að hún varð mjög utan við sig og vissi ekki hvað hún var að gera oft og tíðum í vinnunni. Hún segist til að mynda einu sinni hafa reynt að svara í símann með banana. 

Fleiri upplifa það að vera utan við sig og sagði önnur kona að hún hefði byrjað að týna lyklum og símanum sínum sem hún fann síðan á ótrúlegustu stöðum eins og í ísskápnum, frystinum eða inn í skáp. Hún notaði einnig sykur í stað salts í matinn. 

Meðgangan er ekki bara dans á rósum.
Meðgangan er ekki bara dans á rósum. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert