Lögð inn á spítala vegna ógleði

Amy Schumer glímir við mikla ógleði á meðgöngunni líkt og …
Amy Schumer glímir við mikla ógleði á meðgöngunni líkt og Katrín hertogaynja gerði. Samsett mynd

Grínleikkonan Amy Schumer er ólétt og líkti sér við Meghan hertogaynju þegar hún tilkynnti óléttuna. Schumer á þó meira sameiginlegt með Katrínu hertogaynju en Meghan þar sem hún þjáist af mikilli ógleði líkt og Katrín gerði á meðgöngum sínum. 

Schumer birti mynd af sér á sjúkrahúsi í vikunni þar sem hún gerði grein fyrir því af hverju hún þyrfti að fresta sýningum sínum í Texas. „Ég er á spítala. Það er í lagi með mig. Það er í lagi með barnið en allir sem segja að annar þriðjungur meðgöngu sé betri eru ekki að segja allan sannleikann. Ég hef verið verri á þessum þriðjungi,“ skrifaði Schumer meðal annars á Instagram. 

Segist hún þjást af mikilli ógleði og fylgir því stundum mikill vökvaskortur og spítalainnlögn. Á fræðimáli kallast það Hyp­eremes­is Gra­vi­d­ar­um (HG). Var Katrín meðal annars lögð inn á spítala vegna þess þegar hún gekk með Georg. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert