Nýbakaðar mæður fá oft ekki mikinn svefn og eiga í stökustu vandræðum með að gefa sér tíma fyrir sturtu eða kaffibolla. Ástralska móðirin Melissa Dykstra keypti sér smá tíma með því að blása upp uppþvottahanska og leggja á maga dóttur sinnar.
Myndinni af barninu með uppblásinn uppþvottahanska á maganum hefur verið deilt víða og mæður hrósa Dykstra fyrir hugmyndina.
„Þetta gaf mér nógu mikinn tíma til þess að fara í sturtu og klára kaffið á meðan það var enn heitt,“ sagði móðirin í samtali við News.com.au. „Ég sat hjá henni og hún var ekki reið þegar hún vaknaði, leit bara út fyrir að vera aðeins ringluð.“