Beckham gagnrýndur fyrir að kyssa dóttur sína

David Beckham birti þessa mynd af sér og dóttur sinni …
David Beckham birti þessa mynd af sér og dóttur sinni á skautasvelli nýverið. Ljósmynd/skjáskot Instagram

David Beckham fór með dóttur sína, Harper Seven Beckham, á skauta í byrjun vikunnar á skautasvellinu við Náttúrugripasafnið (National History Museum) í London. Hann birti mynd af sér og henni við svellið þar sem hann segir að jólahátíðin sé senn að koma og nú sé kominn tími á skauta. 

Samkvæmt Daily Mail voru fylgjendur hans á ólíku máli um myndina sem hann birti á Instagram að kyssa dóttur sína á munninn. Greinin fjallar um ummæli „nettrölla“ sem gagnrýndu fyrrverandi fótboltastjörnuna fyrir kossinn. Einn þeirra skrifaði m.a. að koss á munninn á milli dóttur og föður væri óviðeigandi. 

Þó nokkrir tóku upp hanskann fyrir Beckham og hvöttu hann til að eyða ljótum skilaboðum sem höfðu birst undir myndinni. 

View this post on Instagram

Christmas is coming 🎅🏼 Let’s go skate ♥️

A post shared by David Beckham (@davidbeckham) on Nov 26, 2018 at 1:35pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert