Kris Jenner hefur varla við að sýna myndir af gjöfum sem rignir yfir hana þessa dagana frá börnum hennar. Jenner sem átti afmæli í byrjun mánaðarins fékk draumabílinn, Ferrari, frá Kylie Jenner. Síðan gaf Kim Kardashian West móður sinni ferðatöskusettið frá Tiffany & co nýverið.
Undir myndinni af töskusettinu á samfélagsmiðlum má lesa fyndin skilaboð á borð við: Er Kylie Jenner ekki uppáhaldsdóttir þín? Hún gaf þér Ferrari í afmælisgjöf, manstu.
Ummælin koma án efa þar sem Jenner greindi Ellen Degeneres nýverið frá því að hún eigi sér uppáhaldsbarn en það sé misjafnt eftir dögum.
View this post on InstagramA post shared by Kris Jenner (@krisjenner) on Nov 29, 2018 at 1:15pm PST