Útilokar ekki barneignir 49 ára

Jennifer Aniston er ánægð með lífið eins og það er.
Jennifer Aniston er ánægð með lífið eins og það er. AFP

Ófáar fréttir hafa verið skrifaðar síðustu 15 ár um barnalöngun og mögulegar barneignir Jennifer Aniston. Hin 49 ára gamla einhleypa leikkona er þó enn barnlaus. Í viðtali við ELLE segist hún ekki búin að útiloka það að stofna fjölskyldu. 

Aniston er mótfallin þeirri hugmynd að konur séu ekki hamingjusamar nema þær eignist börn. Fyrirframákveðnar hugmyndir um hvað konur eigi að gera eins og að gifta sig á ákveðnum aldri og vera búnar að eiga börn á ákveðnum aldri hugnast henni ekki. „Það er far sem við erum hægt og rólega að reyna brjótast út úr,“ sagði leikkonan. 

„Sumar konur eru hreinlega gerðar til að vera eiginkonur og eignast börn. Ég veit ekki hversu náttúrulegt það er fyrir mig,“ sagði Aniston sem er þó ekki búin að útiloka neitt. 

„Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér þegar kemur að barni og maka  hvernig barn kemur inn eða ekki? Og nú með vísindum og kraftaverkum getum við gert hluti á öðrum tímum en við gátum áður.“

Jennifer Aniston og Justin Theroux tilkynntu um sambandsslit sín í …
Jennifer Aniston og Justin Theroux tilkynntu um sambandsslit sín í febrúar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert