Tónlistarkonan Jessica Simpson opinberaði nafn dóttur sinnar í barnagleði um helgina. Simpson er ólétt af sínu þriðja barni en litla stúlkan mun bera nafnið Birdie þegar hún kemur í heiminn.
Þemað í barnagleðinni var „Birdie's Nest“ og birti Simpson myndir af neonljósaskilti með þemanu. Heimildarmaður People staðfesti svo í viðtali að þemað vísaði í nafn barnsins. Nafnið Birdie er gamalt fjölskyldunafn í fjölskyldu Simpson.
Simpson á tvö börn fyrir með eiginmanni sínum Eric Johnson, þau Ace Knute, 5 ára, og Maxwell Drew 6 ára.
Það geislaði af Simpson í barnagleðinni en hún var með blómsveig í hárinu og í blúndukjól.