Svona var vetrarfrí Georgs og Karlottu

Karlotta og Georg.
Karlotta og Georg. mbl.is/AFP

Mörg börn eru í vetrarfríi um þessar mundir og það sama má segja um litla kóngafólkið Georg, fimm ára, og Karlottu, þriggja ára, sem voru í vetrarfríi í síðustu viku. Tóku foreldrar þeirra, hertogahjónin Katrín og Vilhjálmur, sér frí frá opinberum skyldum og fóru út í sveit með börn sín í fríinu. 

Katrín og Vilhjálmur eru þekkt fyrir að dvelja á sveitasetri sínu á Englandi með börn sín þegar þau eiga frí. Rólegheit voru greinilega í fyrirrúmi í fríinu en Katrín fór meðal annars með elstu börnin sín tvö í sund á lúxushóteli í nágrenninu. 

Daily Mail greinir frá því að Katrín hafi farið í sund með Georg og Karlottu í síðustu viku. Segir sjónarvottur börnin hafa stungið sér af bakkanum og Katrín látið börnin keppa í sundi nokkrum sinnum áður en þau fóru í gufu saman. 

Lúðvík sem er að verða eins árs og ekki byrjaður í leikskóla var ekki með í sundi en var annaðhvort heima hjá föður sínum eða heima með barnfóstru fjölskyldunnar. 

Fjólskyldan fór út í sveit í vetrarfríi barnanna.
Fjólskyldan fór út í sveit í vetrarfríi barnanna. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert