Söngkonan Jessica Simpson eignaðist dóttur á þriðjudaginn. Simpson greindi frá komu þriðja barns síns á Instagram en dóttirin fékk nafnið Birdie sem tilkynnt var í steypiboði Simpson.
Jessica Simpson greindi vel og skilmerkilega frá meðgöngunni sem reyndi töluvert meira á Simpson en fyrri tvær. Var hún að vonum í skýjunum þegar barnið kom út í vikunni. Á meðgöngunni bólgnuðu fætur hennar svo upp að hún gat ekki klætt sig í skó auk þess sem hún var lögð inn á spítala í fjórða sinn á tveimur mánuðum í byrjun mars vegna veikinda.
View this post on InstagramA post shared by Jessica Simpson (@jessicasimpson) on Mar 20, 2019 at 12:49pm PDT