Eiga aftur von á barni

Evan Spiegel og Miranda Kerr í febrúar í fyrra.
Evan Spiegel og Miranda Kerr í febrúar í fyrra. mbl.is/AFP

Ofurfyrirsætan Miranda Kerr og Snapchat-stofnandinn Evan Spiegel eiga aftur von á barni en þau eignuðust sitt fyrsta barn saman í maí á síðasta ári. Fyrir átti fyrirsætan soninn Flynn með leikaranum Orlando Bloom. 

Það er skammt stórra högga á milli hjá hjónunum en þau giftu sig í maí 2017 og eignuðust barn ári seinna. Ekki er vitað hvenær von er á barninu en talsmaður fyrirsætunnar greindi frá því á vef E! að fjölskyldan væri spennt að bjóða nýja erfingjann velkominn. 

Um helgina birti svo Kerr myndir af sér af rauða dreglinum þar sem myndarleg og krúttleg lítil óléttukúla fer ekki á milli mála. 

View this post on Instagram

🤰🏻💖👼🏻

A post shared by Miranda (@mirandakerr) on Mar 30, 2019 at 12:35pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert