Fyrirsætan Joyce Prado var svipt tiltinum ungfrú Bólivía nokkrum dögum áður en hún greindi frá því að hún væri ólétt á samfélagsmiðlum. Prado var valin ungfrú Bólivía árið 2018 og tók þátt í ungfrú heimi (Miss Universe) í Taílandi í desember.
Indepent greinir frá því að umboðsskrifstofa Prado hafi tilkynnt að hin 22 ára gamla fegurðardrottning hafi verið svipt titlunum vegna samningsbrots. Ekki kemur því beint fram að ástæðan sé þungunin en allt bendir þó til þess.
„Ég vil deila því með ykkur að ég er hamingjusamasta kona í heiminum af því líf mitt er fullt af ást af því ég og maður drauma minna erum að hefja spennandi og fallegan nýjan kafla í lífinu,“ skrifaði fyrirsætan meðal annars.
Þó svo að Prado hafi ekki verið ólétt þegar hún vann titilinn hefði hún átt að bera titilinn þangað til næsta stúlka verður krýnd. Þykir sumstaðar ekki við hæfi að fegurðardrottningar eigi börn eða eigi von á barni. Prado heldur fyrirsætusamning sínum þrátt fyrir óléttuna.
View this post on InstagramA post shared by Joyce Prado Ribera (@joyceprado97) on Apr 14, 2019 at 6:25am PDT