Umboðs-mamman sem allir hafa skoðun á

Kris Jenner þykir einstaklega vinnusöm kona og er m.a. umboðsmaður …
Kris Jenner þykir einstaklega vinnusöm kona og er m.a. umboðsmaður allra barna sinna. mbl.is/AFP

Í gegnum árin hefur Kris Jenner reglulega ratað á síður fjölmiðla fyrir ákvarðanir sem hún hefur tekið tengdar m.a. börnum sínum. Financial Review gerði áhugaverða umfjöllun um Jenner og kallar hana umboðs-mömmu (e. momager) í greininni. Í svipaðri umfjöllun á vegum The New York Times er spurt: Hvar væri fjölskyldan án Kris Jenner?

Jenner þykir einstaklega vel tengd í Hollywood og þekkir aðra umboðsmenn og framleiðendur vel. Hún er umboðsmaður allra sex barna sinna og er með eigin feril þar sem hún býr til mikla fjármuni. 

Ævintýraleg ung kona

Kris Jenner var skírð Kristen Mary og er fædd árið 1955. Foreldrar hennar skildu þegar hún var ung að aldri og ólst hún upp með móður sinni, systur og foreldrum móður sinnar. Fjölskyldan rak verslun með kerti á þessum tíma. 

Jenner var 17 ára þegar hitti hún lögfræðinginn Robert Kardashian sem var 11 árum eldri en hún. Á þeim tíma þráði Jenner að ferðast um heiminn og varð hún flugfreyja til að lifa þann draum. Robert Kardashian vildi strax giftast henni og þáði hún það í annað skiptið sem hann bað hennar. Þá var hún orðin 22 ára að aldri. 

Framhjáhald sem leiddi til skilnaðar

Með Robert Kardashian var Kris Jenner hin fullkomna eiginkona. Þegar hún varð 30 ára hafði hún eignast fjögur börn, bjó í fallegu húsi og lifði draum margra um gott líf. En það vantaði eitthvað upp á myndina. Hún átti í ástarævintýri við fótboltamann sem Robert Kardashian komst á snoðir um, sem varð til þess að þau skildu.

Skilnaðurinn endaði allt fjárhagslegt öryggi hennar, kortunum hennar var lokað og lífið tók skarpa beygju í nýjar áttir. Vinirnir hurfu á brott og hún upplifði þunglyndi og átti erfitt með að fara í gegnum daginn á þessu tímabili í lífinu. 

Í upphafi tíunda áratugarins þegar skilnaðurinn var um það bil að ganga í gegn fór hún á óvænt stefnumót með ólympíustjörnunni Bruce Jenner sem síðar fór í kynleiðréttingu og heitir nú Caitlyn Marie Jenner. Þau urðu strax ástfangin, áttu hvort um sig fjögur börn og vildu eignast fleiri börn saman. 

Ólympíustjarnan fór á fund með Robert Kardashian á þessum tíma og bað hann að ljúka skilnaðinum. Að þau vildu ekkert með peninga hans að gera. Þau héldu vinskap alla tíð síðan allt þar til Robert Kardashian lést árið 2003. 

Náðu varla endum saman

Þessi tími var erfiður fyrir Jenner-hjónin, enda áttu þau litla peninga og náðu varla endum saman. 

Í raun varð Caitlyn Marie Jenner, þá Bruce Jenner, fyrsta verkefnið sem Kris Jenner tók að sér sem umboðsmaður. Hún setti saman efni sem notað var í ræður og fyrirlestra fyrir maka sinn sem ferðaðist um öll Bandaríkin með m.a. erindið; það býr meistari innra með öllum. Eftir nokkra vinnu komst Jenner á samning við Coca-Cola og Visa svo dæmi séu tekin. Kom fram í fjölmörgum sjónvarpsþáttum og var áberandi í fjölmiðlum á þessum tíma. 

Með þessu verkefni fann Kris Jenner sína hillu í lífinu sem hún hefur notað tengt börnum sínum og sér sjálfri allar götur síðan. 

Upphafið að stórveldinu

Það var síðan árið 2007 sem Kris Jenner hitti Ryan Seacrest að ræða gerð raunveruleikaþáttar með Kardashian-fjölskyldunni. Þá voru börnin orðin sex talsins og margt um að vera í fjölskyldunni. Meginmarkmið með þessari vinnu Jenner var að tryggja fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar. Viðtökur Keeping up With the Kardashians voru miklar frá upphafi og Kris Jenner notaði öll tækifæri sem gáfust til að gera samninga við fyrirtæki tengt sjónvarpsþáttunum. Sumir samningarnir gengu vel á meðan aðrir gengu ekki upp. 

View this post on Instagram

Thank you @archdigest for the amazing March covers!!! I have been a fan for so long and it was such a pleasure to share our creative sides with you.... such an honor and so much fun! #dreamcometrue #ArchitecturalDigest Special thanks to my amazing designers Tommy and Kathe @waldos_designs and @clementsdesign; Text by @mayer.rus; Styled by @lawrenhowell; Fashion styling by @jilljacobsstudio and @charroxstylist #Repost @archdigest: "Editor @amytastley: It goes without saying, the Jenner/Kardashian clan has an indisputable grip on the American imagination. Presented with the opportunity to show our readers (and the internet!) their brand-new, freshly decorated California homes, we sent in the cameras for exclusive double stories on mother @krisjenner and youngest daughter @kyliejenner. Founded in Los Angeles nearly 100 years ago, AD has a long history of charting the tides of domestic taste via celebrity homes. Douglas Fairbanks and Mary Pickford’s Pickfair estate was published in these pages six times over the decades; @cher made seven appearances; and more recently @juliannemoore, @ricky_martin, Jennifer Aniston, and @robertdowneyjr have opened their doors to us. Because the public feels it ‘knows’ the celebrity (versus our private homeowners), there is an extra frisson in peeking into these residences– what will the interiors reveal…? Prepare for a jolt of surprise in our annual Star Power issue out now and online through the link in our profile. Photo of Kylie wearing @marcjacobs by @thefacinator; design by @martynbullard. Photo of Kris wearing @jc_obando by @wabranowicz; design by @waldos_designs and @clementsdesign. Text by @mayer.rus; styled by @lawrenhowell; fashion styling by @jilljacobsstudio and @charroxstylist"

A post shared by Kris Jenner (@krisjenner) on Feb 5, 2019 at 7:34am PST

„Það er til fullt af fólki með góðar hugmyndir og drauma. En ef þú ert ekki tilbúin að leggja á þig það sem til þarf, þá muntu aldrei lifa drauminn,“ segir Kris Jenner. 

Vinnusemi og að vera tilbúnar að sýna heiminum hluta af veruleika sínum er uppskriftin að velgengni fjölskyldunnar. 

Eitt af því sem Kris Jenner hefur verið gagnrýnd fyrir af fylgjendum hennar er m.a. hvernig hún sýnir börn sín lítið klædd. „Mér finnst ekki passa að móðir sé að sýna börnin sín á þennan hátt,“ skrifar einn fylgjenda hennar á Instagram eftir að hún birti mynd af dóttur sinni nakinni. Önnur skrifar: „Er eitthvað af börnum þínum í fötum?“

View this post on Instagram

Poosh has arrived!! Poosh.com #Repost @kourtneykardash: "We’re live. poosh.com #pooshtheboundaries"

A post shared by Kris Jenner (@krisjenner) on Apr 2, 2019 at 9:12am PDT

Sama hvað fólki finnst um Kris Jenner er eitt víst að hún kann að byggja upp stórveldi og er vinnandi dag og nótt. Flestir í fjölskyldunni hafa sagt hana stjórnsama sem hún hefur viðurkennt sjálf. „Hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér í mínu lífi.“

Þeir sem efast um vinnusemi Kris Jenner geta skoðað nýlegt viðtal við hana á Poosh.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert