Um 20 ár eru síðan söngkonan Natalie Imbruglia var á toppi ferils síns. Söngkonan er nú 44 ára og er að hefja nýtt tímabil í lífi sínu en hún verður móðir í fyrsta skipti í haust. Imbruglia greindi frá gleðifréttunum á Instagram í vikunni ásamt því að greina frá nýjum plötusamningi.
Imbruglia virðist vera einstæð en segist lengi hafa þráð að verða móðir. Nú er komið að því eftir tæknifrjóvgun. Söngkonan segist hafa fengið gjafasæði til þess að stofna fjölskyldu. Imbruglia segist ekki ætla tjá sig meira um óléttuna. Svo virðist sem Imbruglia hafi ákveðið að hætta að bíða eftir hinum eina rétta og ákveðið að eignast barn ein.
View this post on InstagramA post shared by natalie_imbruglia (@natalie_imbruglia) on Jul 24, 2019 at 7:20am PDT
Söngkonan hóf ferilinn sem leikkona í Nágrönnum. Hún sló síðan í gegn rétt fyrir síðustu aldamót og var það meðal annars ábreiða hennar af laginu Torn sem gerði hana vinsæla úti um allan heim.