Líkamsvirðing enn mikilvægari á meðgöngu

Danielle Brooks segir mikilvægt að temja sér líkamsvirðingu á meðgöngu.
Danielle Brooks segir mikilvægt að temja sér líkamsvirðingu á meðgöngu. AFP

Orange Is The New Black-stjarnan Danielle Brooks sagði í færslu á Instagram að það sé enn mikilvægara að temja sér líkamsvirðingu á meðgöngu. Leikkonan á von á sínu fyrsta barni í haust.

„Núna þegar ég er að verða móðir skiptir það mig enn meira máli að manneskjan sem ég fæði inn í þennan heim viti að hún er nógu sterk þegar hún verður fyrir kúlnahríð,“ sagði Brooks. „Mér líður eins og það séu ósýnilegar byssukúlur í heiminum sem segja okkur hver við eigum að vera og hvernig við eigum að líta út. Og mig hefur alltaf langað til að sanna fyrir fólki að þetta sé rangt, sanna að þessi líkami sem ég er í sé nóg,“ sagði Brooks.

Leikkonan hefur gert garðinn frægan í hlutverki sínu í Orange is the New Black sem aðgengilegir eru á Netflix. Þættirnir luku göngu sinni á þessu ári. 

Brooks verður þrítug nú í september. Hún segist hafa verið mjög spennt þegar hún áttaði sig á því að hún væri ólétt. „Ég var bara, „bíddu vil ég verða mamma? Mamma, ég er að verða mamma! Guð minn góður! Ég fæ að verða mamma“ þannig að ég var mjög spennt, og trúði þessu varla,“ sagði Brooks.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert