Fæðingarorlof Meghan bara fjórir mánuðir

Meghan hefur gert meira en að hugsa um Archie litla …
Meghan hefur gert meira en að hugsa um Archie litla í fæðingarorlofinu. mbl.is/AFP

Í dag, 6. september, eru fjórir mánuðir síðan hertogahjónin af Sussex Meghan og Harry eignuðust frumburð sinn. Fjórir mánuðir í fæðingarorlof er ekki langur tími en þrátt fyrir það er fæðingarorlofi Meghan að ljúka. 

Greint var frá því í vikunni að Meghan myndi sinna sinni fyrstu opinberu skyldu í næstu viku. Síðast sinnti Meghan opinberlega vinnu sinni í mars. 

Þrátt fyrir að nú sé fæðingarorlofinu formlega að ljúka hefur Meghan gert mun meira en að sinna Archie litla síðustu mánuði. Hún mætti til dæmis á frumsýningu Lion King með Harry í sumar og var kynnt sem gestaritstjóri septemberútgáfu breska Vogue.

Litla fjölskyldan fer svo í opinbera heimsókn til Afríku seinna í september. 

Harry og Meghan á frumsýningu Lion King í júlí.
Harry og Meghan á frumsýningu Lion King í júlí. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert