J-Lo vill eignast barn með A-Rod

Jennifer Lopez og Alex Rodriguez á rauða dreglinum í byrjun …
Jennifer Lopez og Alex Rodriguez á rauða dreglinum í byrjun júní. mbl.is/AFP

Tónlistar- og leikkonan Jennifer Lopez sagði í viðtali við Hoda Kotb að hún vill eignast barn með unnusta sínum Alex Rodriguez. 

Í viðtalinu spurði Kotb hana hrein út hvort hana langaði til að eignast börn með Rogriguez og svaraði tónlistarkonan því játandi. 

Hinn fimmtuga Lopez á tvö börn úr fyrra hjónabandi, tvíburana Max og Emme, og Rodriguez á dæturnar Natöshu og Ellu. Þau trúlofuðu sig fyrr á þessu ári og stefna á að gifta sig fljótlega.

Lopez opnaði sig líka um hversu mikið samviskubit hún hefur þegar hún þarf að vera lengi frá börnunum sínum. „Þetta er erfitt. Satt best að segja hata ég að vera í burtu frá þeim. Ég er heppin að vera á þeim stað í lífinu að ég get unnið mikið, en ég get líka sagt „ég get ekki gert þetta núna“ eins og ég gerði í fyrra,“ sagði Lopez.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert