49 ára og ekki tilbúin fyrir móðurhlutverkið

Naomi Campbell er ánægð með líf sitt án barna og …
Naomi Campbell er ánægð með líf sitt án barna og maka. AFP

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell er 49 ára, einhleyp og barnlaus. Campbell segir í viðtali við WSJ. að því fram kemur á vef People að hún finni ekki brýna þörf fyrir að breyta stöðu sinni. 

Þegar Campbell var spurð út í hvort börn væru á dagskrá svaraði hún hreinskilnislega. 

„Ekki enn þá, ég sé til hvaða heimurinn færir mér. Eins og er hefur heimurinn fært mér eitthvað í líkingu við útvalda fjölskyldu,“ sagði Campbell. Segist hún hafa tekið yngri fyrirsætur undir verndarvæng sinn og segir hún að hin 19 ára gamla fyrirsæta Adut Akech kalli sig mömmu. 

Campbell segist taka því rólega þegar kemur að karlmönnum og segir mikilvægt að halda einkalífinu út af fyrir sig. 

„Að vera einn þýðir ekki endilega að þú sért einmana. Ég hef ekki tíma fyrir að láta mér leiðast og ég hef ekki tíma fyrir að vera einmana.“

Naomi Campbell.
Naomi Campbell. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert