Heldur Suri meðvitað frá sviðsljósinu

Þeim mægðum bregður þó stundum fyrir í sviðsljósinu.
Þeim mægðum bregður þó stundum fyrir í sviðsljósinu. skjáskot/Instagram

Leikkonan Katie Holmes hefur meðvitað reynt að halda dóttur sinni, Suri Cruise, frá sviðsljósinu síðustu ár.

Suri litla, sem nú er orðin 13 ára, var eitt mest myndaða barn Hollywood þegar hún var yngri. Hún var á lista Forbes yfir Hollywood Power Kids árið 2008, enda dóttir tveggja stórleikara, þeirra Katie Holmes og Tom Cruise. 

Foreldrar hennar skildu árið 2012 og síðan þá hefur Holmes haldið henni frá sviðsljósinu. Holmes sjálf hefur einnig haldið sig frá sviðsljósinu og hélt til að mynda áralöngu ástarsambandi sínu og leikarans Jamie Foxx leyndu lengi. 

Hún segir í viðtali við Stellar að hún hafi fengið mörg ráð frá móður sinni Kathleen og að þær þrjár, Holmes, Suri og Kathleen séu allar mjög nánar. Hún hefur að mestu leyti farið með forræði yfir dóttur sinni en hvorki Holmes né Cruise hafa talað opinberlega um hvernig málum sé háttað hjá þeim. Þær búa nú tvær saman í New York-borg í Bandaríkjunum.

„Ég hef fengið ráð frá mömmu minni um uppeldi dóttur minnar. Ég kann að meta samband okkar allra og ég kann að meta mína eigin móður meira og meira og allar þær áskoranir sem hún hefur þurft að takast á við, núna þegar ég er sjálf móðir,“ sagði Holmes.

Fyrrverandi meðlimur í Vísindakirkjunni, kirkjunni sem Cruise er hluti af, sagði í viðtali fyrr á þessu ári að Cruise mætti tæknilega séð ekki vera í samskiptum við dóttur sína þar sem hún er ekki meðlimur í kirkjunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert