Kann vel við að vinna með eiginmanninum fyrir börnin

Leikkonan Rose Byrne er mikil fjölskyldukona.
Leikkonan Rose Byrne er mikil fjölskyldukona. mbl.is/AFP

Ofurparið Rose Byrne og Bobby Cannavale hafa verið saman í sjö ár samfleytt sem þykir góður tími hjá fræga fólkinu. Þau hafa unnið saman að fimm kvikmyndum á þessum tíma en eru þekkt fyrir að halda sig í sitthvoru lagi þegar kemur að viðtölum í fjölmiðlum.  

Þau gerðu undantekningu á þessu í nýlegu viðtali við Vanity Fair þar sem fram kemur áhugi Byrne á því að vinna með Cannavale. Hann tekur í sama streng og segir:

„Maður eignast börn saman og svo verða þau stærri og ef mann langar ekki að vera í burtu frá fjölskyldunni þá hefur maður alltaf þetta val að velja sér verkefni saman.“ 

Byrne og Cannavale eiga tvo drengi saman. Þá Rocco sem verður bráðlega fjögurra ára og Rafa sem er tveggja ára. Fjölskyldan er samrýnd ef marka má viðtalið og börnin í höfð í fyrirrúmi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert