Hin fimmtuga Jennifer Aniston virðist hætt að láta erfiða æsku sína trufla sig. Hún virðist að minnsta kosti vera búin að taka föður sinn í sátt. Leikkonan varði jólunum með föður sínum, John Aniston, sem einnig er leikari og er orðinn 86 ára gamall.
„Jól með einum af skapara mínum. Þá og nú,“ skrifaði Friends-stjarnan á Instagram og birti nýja mynd ásamt eldri mynd af þeim feðginum. „Elska þig pabbi,“ bætti hún við.
Eins og sjá má á myndunum hefur leikkonan breyst töluvert síðan hún var lítil stelpa. Faðir hennar hefur að sjálfsögðu elst líka en heldur þó í gamla góða yfirvaraskeggið þótt liturinn á því sé nú hvítur.
View this post on InstagramChristmas with one of my creators. Then and now #TBT Love you, papa ❤️
A post shared by Jennifer Aniston (@jenniferaniston) on Dec 26, 2019 at 2:37pm PST