Þessi eiga von á barni 2020

Herra Hnetsmjör á von á barni á næsta ári með …
Herra Hnetsmjör á von á barni á næsta ári með kærustu sinni Söru Linneth. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Það er nóg að gera hjá íslenskum stjörnunum við að fjölga sér. Fjöldinn allur af stórstjörnum hefur tilkynnt að þau eigi von á barni árið 2020. Barnavefur mbl.is hefur tekið saman hvaða pör eiga von á barni á næsta ári. 

Herra Hnetusmjör og Sara Linn­eth L. Castañeda

Rapparinn Árni Páll, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör og kærastan hans Sara Linneth tilkynntu það í sumar að lítið hnetusmjörsbarn væri væntanlegt á vormánuðum. 

Edda Sif og Vilhjálmur eiga von á barni.
Edda Sif og Vilhjálmur eiga von á barni. Ómar Óskarsson


Edda Sif Pálsdóttir og Vilhjálmur Siggeirsson

Lítið Landabarn er væntanlegt hjá íþróttafréttakonunni Eddu Sif og tökumanninum Vilhjálmi á næsta ári. 

Ísak Ernir Kristinsson og Margrét Bjarnadóttir eiga von á barni.
Ísak Ernir Kristinsson og Margrét Bjarnadóttir eiga von á barni.


Margrét Bjarnadóttir og Ísak Ernir Kristinsson

Margrét Bjarnadóttir, dóttir Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Ísak Ernir eiga von á sínu fyrsta barni saman í apríl 2020. 

Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen eiga von á barni.
Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen eiga von á barni. mbl.is/Eggert Jóhannesson


Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen

Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW Air, og kærasta hans, Gríma, eiga von á sínu fyrsta barni saman á næsta ári. 

Aðalsteinn Kjartansson og Elísabet Erlendsdóttir eiga von á barni.
Aðalsteinn Kjartansson og Elísabet Erlendsdóttir eiga von á barni. skjáskot/Instagram


Aðalsteinn Kjartansson og Elísabet Erlendsdóttir

Fréttamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson og kærasta hans, Elísabet, eiga von á sínu fyrsta barni saman á næsta ári. Fyrir á Aðalsteinn tvo syni.

Steindi og Sigrún Sig eiga von á barni.
Steindi og Sigrún Sig eiga von á barni. Styrmir Kári


Steinþór Hróar Steinþórsson og Sigrún Sigurðardóttir

Steindi Jr. og kærasta hans Sigrún Sigurðardóttir eiga von á sínu öðru barni á næsta ári. Fyrir eiga þau dótturina Ronju.

Móeiður og Hörður Björgvin eiga von á barni.
Móeiður og Hörður Björgvin eiga von á barni. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son


Hörður Björgvin Magnússon og Móeiður Lárusdóttir

Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin og kærasta hans Móeiður eiga von á sínu fyrsta barni á næsta ári. 

Guðrún Helga á von á sínu fyrsta barni.
Guðrún Helga á von á sínu fyrsta barni. Ljósmynd/Aðsend


Guðrún Helga Sørtveit og Steinar Örn Gunnarsson

Blogg­ar­inn Guðrún Helga Sørtveit og Stein­ar Örn Gunn­ars­son eiga von á sínu fyrsta barni snemma á næsta ári.

Sverrir Bergmann.
Sverrir Bergmann. mbl/ Eggert Jóhannesson

Sverrir Bergmann og Kristín Eva Geirsdóttir

Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann á von á sínu fyrsta barni með kærustu sinni, Kristínu Evu Geirsdóttur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert