Á Raggi Sig von á barni?

Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knatt­spyrnumaður­inn Ragn­ar Sig­urðsson er fluttur til Kaupmannahafnar með unnustu sinni, hinni rússnesku Alenu. Svo virðist sem fleiri breytingar séu í farvatninu þar sem margt bendir til þess að parið eigi von á barni. 

Engin formleg tilkynning hefur borist frá parinu á samfélagsmiðlum en Alena birtir reglulega myndir í sögu sinni á Instagram sem benda til þess að barn sé væntanlegt. Hún hefur meðal annars birt mynd af samfellu og merkt Ragnar á myndina sem og birt mynd af barnarúmi.  Hún hefur auk þess að minnsta kosti tvisvar birt mynd af sér og Ragnari og látið fylgja með tjáknmynd af konu, manni og litlu barni. 

View this post on Instagram

👨‍👩‍👧🖤

A post shared by Alyonushka (@b.a.msk) on Feb 14, 2020 at 12:43am PST

View this post on Instagram

Merry Christmas 👨‍👩‍👧🎄🎁

A post shared by Alyonushka (@b.a.msk) on Dec 25, 2019 at 1:13pm PST



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert