Mr. Big eignaðist sitt annað barn 65 ára

Chris Noth ásamt leikkonum Sex and the City.
Chris Noth ásamt leikkonum Sex and the City. AFP

Leikarinn Chris Noth eða Mr. Big eins og hann var kallaður í sjónvarpsþáttunum Beðmálum í borginni eignaðist sitt annað barn í vikunni með eiginkonu sinni Töru Wilson. Fyrir eiga hjónin 12 ára gamlan dreng. 

Noth birti mynd af syni sínum á Instagram og greindi frá því að drengurinn hefði fengið nafnið Keats Noth. Eldri sonur hjónanna heitir Orion Christopher. 

Kristin Davis sem fór með hlutverk Charlotte í Beðmálum í borginni var fljót að óska fyrrverandi vinnufélaga sínum til hamingju. „Guð minn góður! Hann er svo fullkominn og fallegur! Til hamingju til ykkar allra,“ skrifaði Davis.  

View this post on Instagram

Down from the heavens comes our second son- Keats! “ A thing of beauty is a joy forever”

A post shared by Chris Noth (@chrisnothofficial) on Feb 18, 2020 at 8:25pm PST

Hjónin Tara Wilson og Chris Noth eiga nú tvö börn.
Hjónin Tara Wilson og Chris Noth eiga nú tvö börn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert