Ósammála um hverjum börnin líkjast

Sarah Michelle Gellar og Freddie Prinze Jr.
Sarah Michelle Gellar og Freddie Prinze Jr. ROBERT GALBRAITH

Hjónin Freddie Prinze Jr. og Sarah Michelle Gellar greinir á um hvoru þeirra börn þeirra líkjast. Þau eiga dótturina Charlotte 10 ára og soninn Rocky 7 ára. 

„Henni finnst Charlotte líkjast sér. Mér finnst hún alveg eins og ég. Henni finnst Rocky líta út eins og ég en mér finnst hann líkjast henni,“ sagði Prinze Jr. í viðtali. 

Þó að þau hjónin geti ekki komið sér saman um hverjum börnin líkist finnst Prinze Jr. vera með svipaðan persónuleika og hann. 

„Charlotte er meira eins og ég tilfinningalega. Hún er aðeins til baka og þögul til að byrja með þangað til hún er orðin örugg. Þá fer það eftir stemningunni í herberginu hversu mikið hún opnar sig. Það er ég,“ sagði Prinze Jr. 

„Og Rocky er meira eins og Sarah. Hann vill hafa hlutina á ákveðinn hátt. Hann er meira ákveðinn. Hann er opnari. Hann er til í að tala við fólk sem hann þekkir. Samanborið við mig og Charlotte, við treystum engum,“ sagði Prinze Jr.

Prinze Jr. og Gellar hafa haldið börnum sínum frá fjölmiðlum og birta ekki myndir af þeim á samfélagsmiðlum. 

„Fullt af fólki vill setja börnin sín á samfélagsmiðla. Fullt af fólki vill sýna börnin sín. Það er bara eitthvað sem ég hef aldrei gert,“ sagði Prinze Jr. 

Um framtíð barnanna sagði hann að þau mættu gera það sem þau vildu eftir að þau verða 18 ára en að þau hjónin hefðu ekki látið þau leika í neinu hingað til. „Ég er ekki að reyna að hagnast fjárhagslega af börnunum mínun. Reikningar okkar Söruh eru greiddir. Börnin okkar þurfa ekki að leika. Ef þau vilja leika þá er fullt af leikhúsum sem þau geta tekið þátt í. Það eru skólaleikrit sem þau geta verið í.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert