Aflétti prinsessubanninu

Keira Knightley kennir dóttur sinni gagnrýna hugsun.
Keira Knightley kennir dóttur sinni gagnrýna hugsun. AFP

Leik­kon­an Keira Knightley komst í fréttir árið 2018 fyrir að banna klassískar Disney-myndir á heimili sínu. Margt hefur breyst síðan þá eins og fram kemur í viðtali við hana í Porter. Knightley hefur eignast sitt annað barn og dóttir hennar á fimmta ári er búin að horfa á allar myndirnar sem áður voru bannaðar. 

„Hún hefur horft á þær allar núna,“ andvarpaði Knightley. Myndir sem voru bannaðar voru myndir á borð við Öskubusku og Litlu hafmeyjuna. Hin fjögurra ára gamla Edie getur þó horft á prinsessumyndirnar með gagnrýnum augum. 

„Það er ekki í lagi að þessi maður kyssti hana án samþykkis,“ sagði dóttir Knightley þegar þær horfðu á Þyrnirós. „Ég get ekki sagt þér hversu ánægð ég var. Ef ég geri ekki neitt annað þá náði ég að minnsta kosti að troða þessu inn,“ sagði leikkonan í viðtalinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka