Víðir Reynisson orðinn afi

Víðir Reynisson er orðinn afi.
Víðir Reynisson er orðinn afi. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra og stjórnandi Almannavarna er orðinn afi. 

„Ást við fyrstu sýn. Litla afa- og ömmustelpan okkar er mætt. Dásamlegt að fá að hitta hana og byrja að kynnast. Lífið er yndislegt,“ sagði Víðir á facebooksíðu sinni. 

Faðir stúlkunnar er Kristján Orri Víðisson, sonur Víðis og Sigrúnar Maríu Kristjánsdóttur. Móðir stúlkunnar heitir Elva Björk Þórhallsdóttir. 

Barnavefurinn óskar Víði og fjölskyldu innilega til hamingju með fæðingu stúlkubarnsins!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert