Segir börnin skjáfíkla en setur ekki reglur

Hugh Grant á fimm börn.
Hugh Grant á fimm börn. AFP

Leikarinn Hugh Grant segir að hann reyni ekki að banna börnum sínum að vera í símanum. Grant á fimm börn sem eru öll fædd frá árinu 2011. Hann segir börnin háð símunum en hann hefur það ekki í sér að setja sérstakar símareglur. 

„Þau eldri eru auðvitað fíklar. Ég veit ekki hvað ég á að gera við því,“ sagði Grant í viðtali við Saga Magazine að því fram kemur á vef Daily Mail. 

„Gáfaðir foreldrar banna þá, er það ekki? En við erum ekki gáfaðir foreldrar, við erum örvæntingarfullir foreldrar.“

Hugh Grant og Anna Eberstein eru örvæntingarfullir foreldrar.
Hugh Grant og Anna Eberstein eru örvæntingarfullir foreldrar. AFP

Grant er meðvitaður um að allur þessi skjátími hafi ekki góð áhrif á börnin en börnin þegja að minnsta kosti á meðan þau eru upptekin við skjáinn. Sjálfur er Grant ekki hrifinn af símanum sínum og sagði það hafa verið gott þegar hann gleymdi honum eitt sinn heima. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert