Perry finnst erfitt að vera ólétt á veirutímum

Katy Perry og Orlando Bloom eiga von á sínu fyrsta …
Katy Perry og Orlando Bloom eiga von á sínu fyrsta barni saman. AFP

Tónlistarkonan Katy Perry segir það taka mikið á geðheilsu hennar að vera ólétt á meðan kórónuveiruheimsfaraldurinn geisar. Perry gengur nú með sitt fyrsta barn og segist sökkva niður í þunglyndi reglulega. 

Perry opnaði sig í viðtali við E News þar sem hún sagðist eiga góða og slæma daga. „Ég fer að gráta þegar ég horfi niður á tærnar mínar eða ég græt þegar ég er að gera einfalda hluti,“ sagði Perry. 

Hún sagðist telja að þetta væri flest tengt hormónum en auk þess væri hún ekki vön að vera lokuð inni svona lengi. 

„Ég var alltaf á ferðinni. Núna get ég ekkert farið nema út í bíl. Þannig að ég fer rosa oft út í bíl. Þar er ég örugg,“ sagði Perry.

Í tísti fyrr í vikunni sagði Perry: „Stundum veit ég ekki hvort er verra, að reyna að forðast veiruna eða þynglyndisöldurnar sem fylgja þessum nýja veruleika.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert