Pratt búinn að bæta á sig á meðgöngunni

Chris Pratt segist hafa bætt aðeins á sig.
Chris Pratt segist hafa bætt aðeins á sig. AFP

Íslandsvinurinn Chris Pratt segist vera búinn að bæta á sig nokkrum „samúðarkílóum“ á meðgöngu eiginkonu sinnar Katherine Schwarzenegger. 

Schwarzenegger gengur nú með þeirra fyrsta barn og hefur þráð alls konar mat eins og gerist oft á meðgöngunni. Pratt tekur greinilega fullan þátt með eiginkonu sinni og segist vera óvenjuhrifinn af súrum gúrkum og ís um þessar mundir.

„Má ég vera hreinskilinn við ykkur? Ég var ómögulegur um daginn og kvartaði yfir smávegis bakverkjum og mjaðmaverkjum og um að ég hefði bætt á mig í sóttkví og hún leit bara á mig,“ sagði Pratt og bætti við að hann hefði svo áttað sig á að hann gæti ekki kvartað yfir því við hana á meðan hún gengur með barn þeirra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert